
|
EUROMAP |


|
Viki © 2005 |
|
EUROMAP var samstarfsverkefni 17 þjóða; hinna 15 þjóða Evrópusambandsríkjanna, auk Íslands og Noregs. Um tvö verkefni var að ræða og lauk fyrra verkefninu í ársbyrjun 1998 en því seinna um mitt ár 1999. Markmið samstarfsins var að efla hagnýtingu í tungutækni í hverju aðildarlandi fyrir sig sem og í Evrópu allri. EUROMAP var styrkt af Evrópusambandinu en gert var ráð fyrir að hvert málasvæði myndi síðan vinna megnið af nauðsynlegu þróunarstarfi og legði til það sem kostar að koma hverju máli áfram til upplýsingasamfélagsins. Evrópuþjóðirnar vilja að ný tækni verði til að auðvelda samskipti manna sem tala ólíkar tungur, en ekki að útbreiddustu tungumálin verði einráð í upplýsingasamfélagi framtíðarinnar. EUROMAP var ætlað að flýta því að niðurstöður rannsókna væru nýttar til að svara þörfum markaðarins. Reynt var að vekja umræðu og efla starf sem beindist að nýtingu tækja í tungutækni. Lokamarkmiðið var að bæta stöðu Evrópu á alþjóðlegum markaði. Almennt er talið að tungutækni sé það svið sem ráði því hvort og þá hvaða tungumál komist lifandi til upplýsingasamfélagsins. Þar er gert ráð fyrir að tungumál verði algerlega tölvutæk, þ.e. tölvur geti lesið, heyrt, talað og skrifað. Fjöltyngdar tölvur (upplýsingakerfi) verða þar allsráðandi. Viki © 1999 |