dd
sss

Ráðgjöf í upplýsingatækni

 
vísir
     
vísir
 

mynd

Hvað þarf til að virkja kraftinn?

Þarfagreining er nauðsynleg forvinna í upplýsingatækni eins og öðrum sviðum til að raunhæf mynd fáist af umfangi og þar með kostnaði við hönnun, smíði og innleiðingu lausna.

 Skipuleg þarfagreining minnkar jafnframt verulega líkur á að sökkva þurfi kostnaði vegna ómarkvissra fjárfestinga.  Verulegur hluti kostnaðar í upplýsingatækni er vegna  óáþreifanlegar hluta og því eru meiri líkur á að sökkva þurfi kostnaði ef ekki er rétt að málum staðið.

 Formleg þarfagreining sem tekur mið af fyrirliggjandi stefnumótun tryggir þannig betri nýtingu á fjármunum við forgangsröðun verkþátta og með því að minnka líkur á að sökkva þurfi kostnaði.

 Við höfum unnið að þarfagreiningu á ýmsum sviðum upplýsingatækni. Bæði hér á landi en ekki síður í tengslum við þróunarverkefni í Evrópu, sem sum hver hafa notið fjárstuðnings úr þróunarsjóðum ESB.

 

Viki ehf, Ármúla 32, 108 Reykjavík, Sími: 5616990

© Viki ehf, 2010