![]() |
|
Ráðgjöf í upplýsingatækni
|
|
|
Högun er formleg framsetning á innra skipulagi upplýsingatækni. Högun er það sem gjarnan kallast “architecture” á erlendum málum. Högun upplýsingatækni þjónar sama tilgangi og borgarskipulag fyrir borgir. Öllum er ljóst hvaða skipulagshugmyndir eru lagðar til grundvallar og hvaða skilyrði lausnir þurfa að uppfylla til að samrýmast skipulaginu. Við innleiðingu á nýrri högun þarf eðli máls samkvæmt að taka tillit til þess sem fyrir er. Annað hvort er að tryggja virkni þess áfram ellegar að leysa það af hólmi með nýjum lausnum. Það er hliðstætt því að eldri hús og götur eru ýmist látin halda sér, breytt eða jafnvel hverfa í nýju skipulagi borga og bæja. Formleg högun lengir líftíma lausna, minkar líkur á að sökkva þurfi kostnaði og auðveldar ákvörðun við val á lausnum á hverjum tíma. Formleg högun leiðir jafnframt til meiri samþættingar á lausnum og stuðlar þannig að lægri rekstrarkostnaði af upplýsingatækni.
|
Viki ehf, Ármúla 32, 108 Reykjavík, Sími: 5616990 |
© Viki ehf, 2010 |